15mars
Nú loksins erum við flutt inn í nýja íbúð, sem er s.s. 2ja herbergja 70ferm penthouse íbúð.....ég segji penthouse því að þetta er eina íbúðin á efstu hæðinni og lyftan oppnast náááánast beint inn í íbúð :) Hún er mjög björt og fín, og við erum alltaf að koma okkur betur og betur fyrir hérna. Við bjuggum ens og flestir vita í íbúð sem fylgdi með húsgögnum þannig að við áttum ekki neitt þegar við komum hingað. Við náðum að skrapa saman í sófa, borð og einhverjar hillur og svo fengum við mjög töff Bang & Olufsen sjónvarp fyrir 1000 kall.
Skólinn minn gengur vel þessa dagana og það er heldur rólegt núna yfir páskana, sem er alveg ágætt. Er voða mikið í verklegu þessa stundina og erum við núna í nudd og púnkta meðferða kúrsi eða Chiropractic soft tissue treatment. Svo er ég mikið að æfa mig í hnykkingatækni svo maður verði aðeins meira undibúinn fyrir næsta ár, það er alltaf gott að vera á undan öllum öðrum.
Ég hef verið að fara á þessa helstu tónleika sem ég hef áhuga á og seinast fór ég á Smashing Pumpkins tónleika og verð ég að segja að það voru verstu tónleikar sem ég hef farið á!!!! Þeir vou alveg glataðir, vildu ekki spila gamla góða stöffið og svo vanntaði 2 úr orginala bandinu. Ljósi púnkturinn var trommuleikarinn sem var alveg géðveikur!!!!! held að hann heiti Jimmy chaimberland. Svo er ég að fara á amerísku þúngarokk kóngana í Down og það er einginn annar enn Phil Anselmo fyrrum söngvari PANTERA sem syngur fóninn, svo er Rex líka á bassanum. Ég hugsa að ég eigi eftir að fá hjartaáfall ef þeir taka pantera lög sem ég held að þeir geri......djöfull verður GÉÐVEIKT!!!!!!!
Lilja Marín er alveg ótrúlega fyndin þessa stundina en hún er farin að verða svo sænsk að það hálva væri nóg. Ég hugsa að það er 50 -50 íslenka og sænska þegar hún talar við okkur, en í leikskólanum talar hún sænskuna mjög vel. Svo vill hún fara að hjóla þannig að við vorum að spá í að gefa henni lítið þríhjól um páskana í stað páskaeggsins....sem okkur sár vanntar hérna í svíþjóð.
Hann Guzzi kom kom í heimsókn frá bandaríkjunum og tók með sér þessa fínu ps3 tölvu og við lágum í gitar hero, sem mér finnst algjör snilld og fífa 2008. Hér má sjá okkur vera í fifa, og það má segja að gunnsteinn hafi lifað sig inn í leikinn...hehehe enda vann hann mig helvítið á honum og ég sagðist ALDREI spila þennan ömurlega leik aftur!!!!!
Vonandi hafa allir það sem best heima á íslandi
Bið að heilsa í bili
Kv Gummi Pálma
03desember
Já gott fólk ég afsaka fyrir blogg leysið enn það er bara svo mikið að gera!!!!! Það er svosem ekkert að frétta heldur, maður er bara hérna í svíþjóð að læra, lyfta og hugsa um fjölskylduna......eins og alltaf. Er orðinn 108 kg aftur enn í mun betra formi....og ætli mamma segi ekki
"er þetta ekki orðið ágætt" næst þegar ég hitti hana.....sem verður vonandi um áramótin. Okkur hlakkar mikið til að koma til íslands um jólin og fá smá skólapásu!! og hitta vini og vandamenn. Ég hef svosem ekkert að segja....hvað haldið þið að maður sé að géra hérna úti....djamma og djúsa alla helgar!!!!???? kommon!!! Er heima um helgar að læra og horfa á boltan á milli þess sem maður er með "quality time" með famelíunni.
Jæja ég nenni ekki þessu lengur, ég bið að heilsa og sjáumst um jólin
p.s. ég verð ekki 27 ára 10 dec!!
22október
Það er loksins tími til að skrifa aðeins um liðna daga hérna í Stokkhólmi.
Ég hef verið ósköp latur við að skrifa uppá síðkastið en það hefur svosem ekkert mikið verið að gerast heldur. Lífið gengur sinn vana gang hérna hjá okkur…..nema kanski í síðustu viku byrjuðu hlutirnir aðeins að gerast. Hlynur bró kom í heimsókn á miðvikudaginn seinasta og það var langþráð að loksins hitta hann og eiða smá tíma með lille bror. Hann hafði þá ekki séð Lilju Marín í næstum 1 ár og það var fyndið hvað hann varð allt í einu í uppáhaldi hjá littlu dömuni. Hún sagði alltaf “hvar er Linuh??” á morgnanna, enn hann svaf að sjálfsögðu alltaf aðeins lengur enn aðrir á heimilinu. Ég nýtti mér það auðvitað að Hlynsi kom í heimsókn og byrjaði að taka myndir fyrir bókina…..og ég held að ég hafi aldrei eldað jafn mikið á skömmum tíma fyrr!!! En náði samt ekki alveg að komast yfir allt sem ég ætlaði mér, enn komst þó yfir margt. Myndir komu rosalega vel út og það verður gaman að sjá hvað gerist í framhaldinu, ég bið Hlyn kanski að setja inn einhverjar myndir svo þið getið aðeins séð hvernig þetta leit út…..enn ekki of mikið!!!!!
Við forum svo í gær á tónleika með Muse með vini mínum Maríus, sem er í sama bek og er mikill gæða drengur. Við Hlynur skemmtum okkur mjög vel enn Rakel fannst þetta einum of rokkað. Lilja Marín var í pössum hjá Beggu og Steinari og svaf bara á milli þeirra í nótt. Mömmu og pabba fannst það ansi erfitt að vera frá snúllunni en við forum í leikskólan í morgun og hittum aðeins prinsessuna…..sem var búin að æla á sig alla.
Bestu fréttir ársins hingað til bárust okkur einnig í gær , en hann Stefán Þór og Ingibjörg eiga von á barni og vonandi verð ég ekki laminn fyrir að tilkynna þetta svona á netinu, en þetta voru langþráðar fréttir að minni hálfu. Hann Stebbi minn á eftir að passa vel inn í föður hlutverkið…..vonandi gengur allt saman vel á þeim skötuhjúum og óska ég þeim aftur til hamingju…….mín ágiskun er að StebbiogIbba Jr á eftir að vera með ljóst hár!!! J
Eftir skemmtilega heimsókn frá Hlynsa tekur blákaldur veruleikin við og verð ég að drífa mig í lærdóminn og koma einhverju í gagn.
Bið að heilsa í bili
Kv. Gummi Pálma