back to school

Þá er komið að smá fréttaflutningi frá Stokkhólmi. Það var afskaplega gott að komast heim aftur eftir íslandsferðina og komast aftur í hversdagslegu rútínuna okkar hérna úti. Skólinn hjá mér er mjög fínn þennan mánuðin, það eru bara verklegir áfangar sem mér finnst nú alltaf skemmtilegastir. Fer svo í próf í öðrum áfanganum 30. jan og hinum 18. febrúar.            
       Við erum síðan að undirbúa okkur undir að flytja, þó svo að við höfum ekki ennþá fengið íbúð. Við þurfum að vera flutt úr þessari íbúð 1 febrúar og við erum núna á fullu við að finna nýja.......... sem er ekkert grín. Við erum þó ótrúlega heppin að hafa Beggu og Steinar hérna  sem hafa boðið okkur að vera hjá sér í einhvern tíma......ég veit hreinlega ekki hvað maður gerði án þeirra hérna úti. Kanski gerist eitthvað í íbúðarmálunum um helgina, en það ætlaði einn gaur að hringja og sína íbúðina um helgina. 
           
        
Vesenið ætlar þó ekki af okkur ganga en það var klesst á okkur á mánudagin. Sem betur fer kom ekkert fyrir Rakel og Lilju Marín, enn bíllinn skemmdist og þarf að vera á verkstæði í 3 – 4 vikur. Við erum semsagt bíllaus og er það mjög skemmtilegt!!! ég þarf að taka 6 strætóferðir og 4 lestaferðir til að komast mínar venjulegu leiðir yfir daginn. 
          
      
Við Hlynsi erum að vinna saman að skemmtilegu verkefni, sem allir eru búinir að fretta af held ég, en hérna er smá sýnishorn......kommentið

yes, please...

Bið að heilsa í bili  

Kv Gummi Pálma
19. janúar 2008 klukkan 10:16
Guðmundur Birkir Pálmason
Íris Heiður skrifar ...
Nammmm.....einmitt það sem mig langar í núna, hún var rosalega góð!! Leiðinlegt að heyra þetta með áreksturinn, en auðvitað skiptir öllu að enginn meiddist. Maður er ekkert lítið háður þessu farartæki:)
Bið að heilsa ykkur.
Kv, sys
20. janúar 2008 klukkan 12:19
hlynur pálma. skrifar ...
gangi þér vel með flutningin og að finna nýja íbúð félagi, leyðinlegt með áreksturinn. En gott að enginn slasaðist!
Verðum í bandi og ég bíð spenntur eftir sendingunni ; )
20. janúar 2008 klukkan 14:08
Ibba sys skrifar ...
Sæll brósi... hahahha, já við hittumst mikið um jólin:) Við systkinin erum alveg svakalega dugleg að hittast. Ætli það sé ekki þannig að þegar ég verð eldri að þá eigum við eftir að eiga meira sameiginlegt, þið eruð öll svo gömul:)

Sakna ykkar og hafiði það best
Ibba sys
30. janúar 2008 klukkan 12:21
Halla Katrín skrifar ...
Hæ hæ, gaman að lesa fréttir af ykkur þarna úti. Leiðinlegt að heyra með bílinn en gott að allt sé í lagi með stelpurnar ykkar. En þessi mynd lítur frekar girnilega út...hlakka til að sjá meira frá ykkur bræðrum!
30. janúar 2008 klukkan 20:06
Sævar skrifar ...
Sæll snillingur. Nennuru að hringja í mig fljótlega, þarf aðeins að ræða við þig minnn kæri.


þú ert góður kokkur
matinn þinn vill ég snæða
en þú ert líka drullusokkur
við þig þarf ég að ræða

takk fyrir..
20. febrúar 2008 klukkan 11:50
hlynur pálma. skrifar ...
okey, ef ég fer aftur inná þessa síðu og þú verður ekki búinn að skrifa neitt, þá er ég hættur!
ég vil myndir af lilju marínu! langt síðan ég hef séð hana ; )

kv
hlynur
27. febrúar 2008 klukkan 20:17
Sævar skrifar ...
Gummi B er breiður
hann kann ekki að syngja
ekki væri ég leiður
ef hann mundi í mig hrinjga

takk fyrir...
13. mars 2008 klukkan 00:38

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Innskráningar kubbur