13desember

Ekki alveg likur sjalfum mer??

Eg sit her a Internet Cafe ad drekka kaffi og borda blueberry muffin, hver hefdi nokkurntiman truad tvi? Thad er ekki islenskt lykklabord thannig ad thetta er eins og sms faersla. Er ad versla jolagjafir og skoda midborgina jolabunignum.......mjog flott, allir i jolaskapi..........nema helv..... arabarnir. Svona midbaejar stemmning er alltaf skemmtileg, veari samt skemmtilegra ad vera med einhverjum. En jaeja eg kem a laug, thannig ad thetta verdur sidasta faerslan i bili.
Kved ad sinni
Gummi Palma
13. desember 2006 klukkan 16:03
Guđmundur Birkir Pálmason
4 athugasemdir
10desember

Grattis!!! jäg er fylt 26 ĺr!!!!

Já ég er 26 ára í dag,......og það er enginn til að halda upp á það með mér. En sem betur fer kem ég eftir viku. Er bara að læra þessa dagana undir frumulífefnafræði prófið á föstudaginn, og get ég sagt ykkur sem heima sitjið....að þetta er vægast sagt ERFITT!! Það eru allir í bekknum í panik-kasti yfir þessu, en þetta reddast fyrir horn held ég, það þyðir ekkert annað en að vera bjartsýnn. Er bara búinn að standa mig nokkuð vel á þessari önn, ég reiknaði um daginn að ég er með 8.8 í meðal einkunn.....hver hefði trúað því?? Það er síðan spennandi áfangi í næstu viku sem er um rönntgen-myndatöku eða MRI (magnetic resorance imaging) og það ætla ég að tileinka mér í minni praktík. Ég hef einnig tekið þá ákvörðun að læra hesta hnykkingar, en það er aðalega kennt í Bandaríkjunum.....ég held að pabbi verði ánægður með það.

                      Ég vill óska Bjarka, Erlu og Arnóri tilhamingju með nýju stelpuna og einnig vill ég óska mér tilhamingju með nýju frænkuna mína, ég get ekki beðið eftir að hitta hana næstu helgi. Ef þið eruð eitthvað að spá í nafni þá er Guðmunda soldið að kom sterkt inn í vetur.
       síðan get ég ekki heldur beðið eftir að komast aðeins í hestana með Stebba og Ibbu um jólin, vonandi náum við að lokka Rakel með okkur. Við Stefán löggðum niður plön um að hittast og borða saman þar sem celebrity chefs Guðmundur og Stefán verða í eldhúsinu.....og ekki væri leiðinlegt ef Valdi og Fanney kæmu líka, ....svona til að halda í hefðirnar.

Bið að heilsa í bili

Kv. Gummi Pálma

10. desember 2006 klukkan 20:25
Guđmundur Birkir Pálmason
3 athugasemdir
03desember

2 vikur eftir af skólanum!! Fljótt ađ líđa mađur!

Liverpool bara með útisigur!! Kraftaverkin geta alltaf gerst.
          Sælir landsmenn nær og fær, alltaf líður vikan og ég er alltaf nær því að komast til íslands í faðm fjölskyldunnar. Það er það eina sem ég get eiginlega hugsað um þessa stundina, það er samt próf í frumulífefnafræði eftir 2 vikur og ég verð að komast í gírinn fyrir það. Er samt orðinn hálf latur eftir síðasta próf, sem var lífefnafræðiprófið. Bekkurinn minn er að fara að halda jólapartýið sem er árlegt og nýnemarnir sjá um það, við þurfum að halda eitthvað leikrit sem snýst um eitthvað “Lucia”  sem ég veit ekkert hvað er....það er eitthvað sænskt......en mér leist ekkert á það þegar ein stelpan spurði mig hvaða hlutverk ég ætlaði að leika og syngja????? ....þeir sem þekkja mig eitthvað vita það að ég er ekki mikið fyrir slíkt!!! Ég vona bara það sé góð mynd í sjónvarpinu það kvöld!!.... neinei. 
                     
                 Það er að verða ansi jólalegt hérna í Svíðjóð, en veðrið er búið að vera mjög millt og fínt. Við Steinar, Guzzi fórum og kíktum á það helsta sem Íkea höfðu uppá að bjóða og skelltum síðan í okkur borgara og ís....og svo beinnt í enska boltann í Lazy- boy sófanum.....helvíti gott!! 
                     
               Annars bið ég að heilsa í bili og skil ykkur eftir með mynd af okkur félögunum á jólahlaðborði á Perlunni sem er árlegur viðburður hjá okkur Valda og Stebba, og konurnar fá að koma með annað hvert ár. Vonandi náum við að komast á þessu ári líka.

Kv. Gummi Pálma
03. desember 2006 klukkan 00:25
Guđmundur Birkir Pálmason
10 athugasemdir
25nóvember

Til hamingju međ afmćliđ Dagmar Lilja!!

Jæja þá önnur vika að líða og alltaf styttist í að ég komi heim í jólafríið!! ....get ekki beðið. Skólinn er alveg að drepa mann......var í lífefnafræði prófi og það gékk bara ágætlega, held allavega nægilega vel til að ná prófinu. Fékk líka að vita einkunnina mína úr hreyfifræðiprófinu sem ég var í fyrir 3 vikum og fékk ég 70 stig af 84 og er það bara helvíti gott. Er núna ný byrjaður í frumuefnafræði sem er framhald af lífefnafræði, og það er vægast sagt erfitt!! Svo er lokapróf í því 15 des.                       Er búinn að liggja í pest í heila viku þannig að það er svosem ekkert spes að frétta, ég og Lárus erum bara búnir að chilla saman og hafa það hyggeligt!! Lárus, fyrir þá sem ekki vita hver það er, er gaurinn sem hjálpar mér að læra undir prófin mín. Hann er frekar horaður enn ég ætla að koma honum í betra form áður enn ég fér meira í vöðvafræðinaJ                        Ég vill óska Dagmar Lilju tilhamingju með afmælið í gær og Íris og Óskar verða bara að knúsa hana frá mér. Einnig vill ég fá að vita hvernig gengur með að skipuleggja brúðkaupið og hvenær maður á þá að fara að steggja Óskarinn!!....hahahahahahah það verður gaman!!

                      Bið að heilsa ykkur í bili, skil ykkur eftir með mynd af mér og Lárusi að læra undir próf. Svo var ég að setja inn nýjar og betri myndir af íbúðinni og hverfinu í kring. Smelli ð á MYNDIR og tékkið á "my crib"


Kv. Gummi Pálma                                     
 P.s. Var að komast að því að það er einn Nonni í bekknum mínum, skil ekki afhverju ég var ekki búinn að sjá það fyrr?? Það gera 2 Gunnara og einn Nonna, kanski bætist eitthvað í hópinn.
25. nóvember 2006 klukkan 20:08
Guđmundur Birkir Pálmason
9 athugasemdir
19nóvember

konulaus, barnlaus og netlaus = allslaus

Já, ég er fluttur í nýju íbúðina og allt gengur bara mjög vel, það var gaman að fá smá pásu frá skólanum og koma til íslands, að hitta fjölskyldu og vini. En skólinn er kominn á fullt aftur og er Lífefnafræðin byrjuð á fullu trukki!!
Annars er ekkert spes að frétta, við Guzzi fórum reyndar á djammið síðustu helgi og var það bara mjög gaman, það var alveg troðið niðrí bæ og við komumst varla hvergi inn......það þýddi ekkert að segja....."ég er að vinna á Hverfis!!"Glottandi
Góðar fréttir!!! Sævar er byrjaður að skrifa í Sæv-barinn og var tími til kominn. Mér líst vel á þetta, enn Auðbjörg??? það er alveg magnað!!! en gott að hún sé ekki 90ára og með Hyper kyfos (kryppu). Gangi þér bara vel að þjálfa og ef hún fer að nálgast 450kg í fótapressunni þá lætur þú mig vita......þá þarf ég að fara að setja í gírinn.
En jæja bið að heilsa öllum í bili og ég kem með flotta færslu með myndum næst!!
Kv. Gummi Pálma
19. nóvember 2006 klukkan 00:47
Guđmundur Birkir Pálmason
1 athugasemd
09nóvember

Íslandsdvölin líđur allt of hratt!!

Tíminn líður allt of hratt hérna á Íslandi!! Er samt búinn að hafa það rosalega gott hérna í faðmi fjölskyldunnar. Við héldum afmæli Lilju Marínar nr. 2 á sunnudaginn var fyrir fjölskylduna mína og það var ótrúlega gaman að sjá alla. Íris systir og Erla eru orðnar ansi myndalegar og það líður hratt til að nýju frændsystkynin koma í heiminn. Arnór Orri og Dagmar Lilja voru hress að vanda, Bjarki og Óskar voru með yfirgang og stæla eins og vanalega og Ibba systir var orðin dauða drukkin. Enn maður lætur það nú ekkert á sig fá. Það vanntaði því miður Hlyn og Hildi og svo eru amma og afi að sóla sig á Kanarí.

            Fór að hitta Sævar í gær og er hann ansi brattur drengurinn, er að klára einkaþjálfarann hjá World class og ekki veitir af að fá alvöru menn inn í þá grein hér á landi. Hann lofaði mér því að koma í heimsókn til Stokkhólmar á næsta ári og verður hann aldeilis að standa við þau stóru orð!!! …..ekki væri leiðinlegt ef menn eins og Stjáni gætu fylgt með í ferðinni, Stjáni er alræmdur í skemmtanalífi Stokkhólmar eftir síðustu ferð hans til Svíþjóðar.

            Stebbi T og Ibba komu í heimsókn í gær og komu með afmælispakka fyrir Lilju Marín, hún fékk Liverpool bangsa ásamt lest og dýrum og fl. , en henni leist ekkert á bangsann, hún heldur kanski með Chelsea eða eitthvað?? Ég reyndi að sína mikinn myndaskap með að baka “apple pie” en hún fékk vægast sagt 0 í einkunnargjöf frá Stefáni matreiðlumeistara. Við Lilja Marín forum svo með stebba og kíktum á nýja hestinn hans, hann Ilm og er hann þykkur á við brúarstolpa sá, ekkert smá helv…..kvikindi. Svo á eftir förum við í heimsókn til Hauks Þorvaldssonar yngri, sem er aðeins mánaða gamall,….. og það er eins gott að pabbi hans sé með tilbúna tertu þegar við komum. Við Valdi erum báðir það heppnir að eiga einstaklega fallegar konur og  einstakelga falleg börn, og konurnar virðast sjá eithvað við okkur ……því ekki erum við fallegir!! Allavega ekki Valdi….hehe

 

Kveð í bili

Gummi Pálma

09. nóvember 2006 klukkan 16:12
Guđmundur Birkir Pálmason
6 athugasemdir
04nóvember

Prófiđ gékk vel og nýtt met í fótapressuni!!

Jæja nú er maður bara á leiðinni heim til íslands!!! Það snjóar hérna í Svíþjóð og það er orðið ansi kuldalegt. Ég var í hreyfifræði – Anatomi prófi í gær, og gékk það mjög vel hjá mér. Þetta er stæsta prófið á árinu, þannig að ég er mjög ánægður að það sé búið....var mánuð að læra undir það!!
           Annars er allt gott að frétta héðan, fékk afhenda íbúðina á miðvikudaginn og er hún alveg stór fín, mjög gott hverfi,sem skiptir höfuð máli í svona stórborgum. Þið getið skoðað myndir af íbúðinni í tenglinum “myndir” hérna hgra meginn, enn þær eru mjög óskýrar. Æfingarnar hafa gengið vel, ef einhver er að spá í því, og við Guzzi erum að bæta okkur mikið vikulega, þó aðalega Guzzi, ég er eiginlega bara að ná mínu fyrra formi, bætti samt persónulegt met í fótapressunni.........450kg sex sinnum. Ulf, félagi minn úr skólanum segir að ég sé með “sick legs”. 
                     

En jæja þá ég kveð ykkur í bili
Kv. Gummi Pálma

04. nóvember 2006 klukkan 14:17
Guđmundur Birkir Pálmason
4 athugasemdir
31október

Gunnar jr kominn í heiminn!!

Jæja gott fólk nú er annað barn Bene hópsins komið í heiminn og vill ég óska Gunnari og Ólöfu innilega til hamingju með strákinn. Það verður gaman að vita hvað hann á að heita.....Guðmundur er alltaf klassískt!!.....íslenskt og gott!! Ég veit ekki alveg ennþá hvort hann hafi fæðst 29okt eða 30okt enn það væri skemmtileg tilviljun ef það væri 29 okt....sama dag og Lilja Marín.....annars er hinn dagurinn alveg jafn góður. Já við Gunnar höfum brallað ýmislegt saman í gegnum tíðina og ætla ég nú ekkert að fara neitt nánar út í það í þetta skiptið......fer í það seinna, þegar að Gunnar Jr er orðinn nógu gamall!! Mig hlakkar til að hitta ykkur þegar ég kem og kenna Gunnsa handtökin þó að ég vita að hann er maður sem getur flest allt....ef ekki allt svei mér þá.                     
                     
Önnur góð tíðindi er að Sævar er byrjaður að tjá sig hérna á bloggsíðunni minni og hef ég skapað ákveðið svigrúm fyrir hans skriftum undir tenglinum “Sæv-Bar skrifar” . Eins og flestir vita þá er hann mikill penni og vill ég að hann njóti sín við skriftirnar hér á þessari síðu, og svo geta menn kommentað eins og þeir vilja. 
 
Kveð í bili
Gummi Pálma 100kg hlúnnkur!!
31. október 2006 klukkan 00:07
Guđmundur Birkir Pálmason
7 athugasemdir
29október

Lilja Marín 1 árs!!, og Arnór Orri 7 ára!!

Tilhamingju elsku ástin mín með fyrsta árið þitt. Þetta er nú aldeilis fljótt að líða. Mér finnst að það gerðist í gær þegar að mamma þín fékk hríðir um miðja nótt.....og pabbi var nú ekkert á því að vakna, en við mamma og Helga amma komumst niður á fæðingadeild þar sem Tobba frænka tók vel á móti okkur. Það var mikill stormur í Reykjavík og ég held að það hafi verið fyrsta snjókoman þennan veturinn, enn þér leið ábyggilega bara vel í maganum á mömmu. Þú komst í heiminn upp úr hádegi (ég vona að þetta sé rétt hjá mér, annars fæ ég líklega að heyra frá mömmu þinni), efitir hetjulega frammistöðu mömmu þinnar og amma Helga og amma Ella voru vitni af því. Síðan komu afarnir og við gátum ekki hætt að dáðst að þessari nýju fallegu stelpu......sem var alveg eins og pabbi sinn....hehe. Ég verð með ykkur í huganum sem og alltaf og svo hittumst við aðeins eftir 6 daga, þannig að þá verður gaman.
               Ég vill að sjálfsögðu líka óska Arnór Orra litla kallinum mínum til hamingju með afmælið, en hann fékk einmitt Lilju Marín í afmælisgjöf frá okkur Rakel í fyrra, ekki slæmt það. Þessi littli kall er í uppáhaldi hjá mér eins og flestir vita og mig hlakkar ofboðslega mikið til að hitta hann næstu helgi, eins og alla að sjálfsögðu. Hafðu það gott kallinn minn og knúsaðu mömmu og pabba frá mér. 
 
Bið að heilsa í bili
Kv. Gummi Pálma
Ég vona að myndirnar sjást!!!!


29. október 2006 klukkan 01:48
Guđmundur Birkir Pálmason
7 athugasemdir
25október

Kominn međ íbúđ ....og kominn međ prófkvíđa!!

Jæja þá, loksins er íbúðin komin í höfn, konan hringdi áðan og staðfesti það. Fæ líklega lykklana á þriðjudaginn eða miðvikudaginn næsta. Þetta er búið að vera löng og ströng barátta og ég mæli með að ef fólk er að flytja til Stokkhólmar eða einhverrar stórborgar að vera með íbúðarmálin á hreinu fyrst, það var alveg ótrúleg heppni að ég lennti á þessari íbúð. Konan er meira að segja mikið fyrir íslenska hesta og gæti ég einnig skaffað smá “buissiness” fyrir pabba.                      
                      Það kom í fréttunum að maðurinn sem var stunginn 20m frá mér á laugardaginn var, í biðbænum, dó ekki.....heldur var hann stunginn 7 sinnum og maðurinn sem stakk hann verður dæmdur fyrir tilraun til manndráps. Fyrir þá sem vita ekki um hvað ég er að tala, þá var ég að kveðja gaur úr skólanum og eitthvað innflytjendalið var að slást rétt hjá okkur......það munaði einum (eins og ég kýs að kalla það) að ég hefði lennt í þessu liði. Það hefði auðvitað ekki verið spurning um hvernig það hefði endað...........ég hefði lamið þetta allt saman. 
                     
               
Svo er ég að koma til landsins 4 nóvember, þannig að landsmenn nær og fær geta tekið gleði sína á ný.......frétti af miklu þunglyndi á Íslandi eftir að ég fór. Afmælið hennar Lilju Marínar verður því frestað til 5 nóv svo að ég fái að vera með, sem er mjög gott. Mig hlakkar mikið til að hitta alla og segji ég því bless í bili.
        Kv. Gummi Pálma 
  
P.s. Myndin hér fyrir ofan er bein afleiðing af því að pabbi lét okkur bræðurna kissast eitt sinn í myndatöku. Eftir það finnst okkur hlyn rosalega gott að skella einum rembings kossi á hvorn annan. Ég held að þetta hafi verið afmæliskossinn 2004
25. október 2006 klukkan 19:41
Guđmundur Birkir Pálmason
2 athugasemdir

Auglýsing

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Innskráningar kubbur